S: 562 4250
Naustavör 11, 200 Kópavogur
108.900.000 Kr.
Opið hús: 09. september 2024 kl. 17:15 til 17:45.

Opið hús: Naustavör 11, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 02 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. september 2024 milli kl. 17:15 og kl. 17:45.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA OG BJARTA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ Í NÝLEGU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 11 Í KÓPAVOGI.

Um er að ræða fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi, með stæði í lokaðri bílageymslu
Íbúðin sjálf er 100,5 fm. Sérgeymsla í kjallara er 5,5 fm. Samtals er eignin því skráð 106,0 fm. 
Fallegar innréttingar og fataskápar frá Brúnás.
Hiti er í gólfum.  Stórar og góðar suðvestur svalir.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 eða á [email protected]  eða Óskar í síma 822-8750 eða á [email protected]

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu með eyju (hvít og svartbæsuð eik) og vönduðum AEG eldhústækjum.
Borðstofa við glugga.
Stór og björt stofa með parketi og útgengi út á rúmgóðar suðvestur svalir (11,6 fm).
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi.
Barnaherbergi með parketi og skápum. (forstofuherbergi)
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili, fallegri hvítri innréttingu frá Brúnás og innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Stæði í bílageymslu er í kjallara.
Snyrtileg sameign og vel umgengin.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
106 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2019
Lyfta:
Fasteignamat:
95.050.000
Brunabótamat:
68.110.000
Áhvílandi:
0