S: 562 4250
Vesturfold 48, 112 Reykjavík
168.900.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGT EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ STAÐSETT Í BOTNLANGA VIÐ VESTURFOLD 48 Í REYKJAVÍK.

Fallegt einbýlishús á einni hæð í Grafarvogshverfi í Reykjavík með góðu aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Húsið er skráð skv. Þjóðskrá 254,1 fm.  Íbúðarhluti er 212,5 fm. og bílskúr er 41,6 fm.
Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Glæsileg lóð með miklum veröndum (stimpilsteypum og steyptum), skjólgirðingum, heitum potti, geymsluskúr og gosbrunnum.
Góð aðkoma er að húsinu með góðum bílastæðum.
1128 fm. lóð þar sem nýtingarhlutfall er ekki fullnýtt.
Húsið er hannað með aðgengisþörfum vegna hreyfihömlunar í huga.  Það er rúmgott og hefur gott aðgengi í alla staði.  Engir þröskular eru innandyra. Salernisaðstaða er aðgengileg og stór og rúmgóð gólfsturta. 

Bókið skoðun hjá Óskari í síma 822-8750 ([email protected]).
Nánari Lýsing:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasnyrting með flísum.
Glæsileg stofa og borðstofa með gólfsíðum gluggum, flísum á gólfi, fallegum arni og útgengi út á verönd.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, búri innaf og flísum á gólfi.
Gangur með flísum á gólfi og fallegum þakglugga.
Glæsilegt baðherbergi, sem var allt tekið í gegn fyrir nokkrum mánuðum, með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili og fallegri innréttingu.
Hjónaherbergi með flísum á gólfi og góðu fataherbergi.  Útgengi út á verönd með heitum potti og skjólgirðinum.
Stórt svefnherbergi, 3 herbergi voru sameinuð, með flísum á gólfi.  Auðvelt er að breyta tilbaka eins og teikning segir.
2 barnaherbergi með flísum á gólfi.
Þvottahús (innangegnt frá forstofu) með flísum á gólfi.
Innangengt er inn í bílskúr frá þvottahúsi.
Bílskúr með flísum á gólfi.
Að utan er húsið í góðu ástandi.  Það hefur verið málað þriðja hvert ár síðast árið 2020.  Þak málað á 5 ára fresti síðast árið 2020 og skipt þá um þaksaum að hluta.  Skipt var um þakglugga árið 2020.

Kostnaður kaupanda:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   2.  Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Einbýli
Stærð:
254 fm
Herbergi:
7
Stofur:
2
Svefnherbergi:
5
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1991
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
156.400.000
Brunabótamat:
126.650.000
Áhvílandi:
0