S: 562 4250
Lerkiás 10, 210 Garðabær
149.000.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGT OG VEL SKIPULAGT 4-5 HERBERGJA PARHÚS MEÐ INNBYGGÐUM BÍLSKÚR VIÐ LERKIÁS 10 Í GARÐABÆ.
Fallegt og vel skipulagt 4-5 herbergja parhús á tveimur hæðum við Lerkiás 10 í Garðabæ.
Eignin er skráð 191 fm., þar af er 27,8 fm. innbyggður bílskúr.
Sólríkar verandir með skjólveggjum og góður garður með geymsluskúr.
Stórar svalir með fallegu útsýni til vesturs.
Rúmgott bílaplan með snjóbræðslulögn að hluta til og nýlegri hleðslustöð.
Frábær staðsetning í vinsælu hverfi. Göngufæri í leikskóla og skóla.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun hjá Hildi í síma 661-0804 ([email protected])

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Innangengt í bílskúr úr forstofu, innaf bílskúr er geymsla.
Hol með flísum á gólfi. 
Gestabaðherbergi innaf holi með flísum á gólfi, uppgendu salerni og vaski.
Stofa og borðstofa í opnu björtu rými með flísum á gólfi. Úr borðstofu er gengið út á verönd til suðausturs.
Eldhús er flísalagt með snyrtilegri hvítri innréttingu og AEG tækjum. Þaðan er gengið út á verönd til suðvesturs.
Efri hæð:
Frá holi er parketlagður stigi upp á efri hæð.  
Hjónaherbergi er stórt með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og rúmgóðum fataskápum.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi. Möguleiki á breyta rýminu í fjórða svefnherbergið. Þaðan er gengið út á stórar vestursvalir með fallegu útsýni.
Þvottahús með innréttingu í vinnuhæð, mikilli lofthæð og handklæðaofni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, hornbaðkari, sturtuklefa og handklæðaofni. 

Viðhald:
3ja fasa rafmagn dregið í bílskúr í hleðslustöð árið 2023.
Gluggar málaðir og yfirfarnir árið 2021.
Húsið að utan sílanborið árið 2020.
Nýtt járn á þaki árið 2017 
Sjá nánar gátlista vegna ástands fasteignar frá seljanda.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
 

Tegund:
Parhús
Stærð:
191 fm
Herbergi:
5
Stofur:
1
Svefnherbergi:
4
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2001
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
137.850.000
Brunabótamat:
92.160.000
Áhvílandi:
0