OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 25.SEPT. KL.18:00-18:30
Ásvallagata 42 í Reykjavík.
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð í lítið niðurgröfnum kjallara. Íbúðin skiptist í stofu/eldhús, opið rými, svefnherbergi og baðherbergi.
þvottahús og hjólageymsla í sameign og sérgeymsla. Allar nánari upplýsingar og pöntun á skoðun hjá:
Edda Svavarsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 845-0425 eða á [email protected].Nánari lýsing:Bjart alrými,
stofa og eldhús með parketi á gólfi.
Eldhús er með nýlegri innréttingu.
Flísalagt
baðherbergi með upphengdu salerni, innréttingu og sturtu.
Svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Á gangi er sameiginlegt
stórt þvottahús og stór hjólageymsla.
Sérgeymsla með góðum gólffleti undir stiga.
Fallegur og sólríkur
garður.
Húsið hefur fengið reglulegt viðhald.
Múrviðgerðir og málað árið 2019.
Lagnir myndaðar árið 2021.
Íbúð mikið endurnýjuð:
baðherbergi flísalagt, upphengt salerni, innrétting, handlaug og tæki árið 2019
Gólfefni, eldhúsinnrétting og tæki árið 2022
Nýjir ofnar í allri íbúð árið 2023
Svefnherbergi parketlagt árið 2024
Nýjar eldvarnarhurðir verða settar í íbúð og sameign fyrir áramót sem seljandi greiðir.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fjárfesting Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.