S: 562 4250
Naustavör 48, 200 Kópavogur
118.900.000 Kr.

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA OG BJARTA 3JA TIL 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ Í NÝLEGU ÁLKÆDDU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 48 Í KÓPAVOGI.


Um er að ræða mjög fallega og bjarta 3ja til 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu álklæddu lyftuhúsi, með stæði í lokaðri bílageymslu og yfirbyggðum stórum suðursvölum.
Íbúðin sjálf er 112,4 fm. Sérgeymsla í kjallara er 12,4 fm. Samtals er eignin því skráð 124,8 fm. 
Fallegar innréttingar og fataskápar frá Brúnás.  Harðparket frá Birgisson er á allri íbúðinni.
Gardínur fylgja með (myrkvunargardínur í svefnherbergjunum, hálfgegnsæjar í stofunni). 
Hiti er í gólfum.  Íbúðinni fylgir bæði verönd og yfirbyggðarsvalir.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað með fallegu útsýni út á sjó og Snæfellsjökul.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 eða á [email protected]  

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu frá Brúnás með eyju (hvít og svartbæsuð eik) og vönduðum AEG eldhústækjum (tveir ofnar) og stein á borði.
Stórar og björtar stofur, borðstofa og stofa með parketi, gengið út á útsýnisvalir  til vesturs úr stofu sem eru með glerskýlingu frá Ál og gler. 
Einnig er gott sjónvarpshol sem möguleiki er á að breyta í herbergi (3 svefnherbergið)  
Hjónaherbergi með parketi á gólfi með  fataherbergi.  Gengið út á góða suðurverönd með skjólveggjum.
Barnaherbergi með parketi og skápum. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili, fallegri hvítri innréttingu frá Brúnás og innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara svo og á 1. hæð.
Stæði í bílageymslu er í kjallara með hleðslustöð (Smappee EV Wall B. 22 kW m. Tengli frá Hleðsluvaktinni).
Snyrtileg sameign og vel umgengin.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
124 fm
Herbergi:
4
Stofur:
2
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2021
Lyfta:
Fasteignamat:
103.650.000
Brunabótamat:
86.760.000
Áhvílandi:
0