S: 562 4250
Naustavör 66, 200 Kópavogur
134.900.000 Kr.
Opið hús: 22. október 2024 kl. 16:00 til 16:45.

Opið hús: Naustavör 66, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. október 2024 milli kl. 16:00 og kl. 16:45. Nánari upplýs. gefur Guðmundur Valtýsson s. 865 3022 eða [email protected]

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 3. HÆРMEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í NÝJU LYFTUHÚSI VIРNAUSTAVÖR 66 Í KÓPAVOGI.
Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð, merkt 0301 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 98,2 fm. Sérgeymsla í kjallara er 10,2. fm. Samtals er eignin því skráð 108,4 fm.
Sjávarútsýni.  suðvestursvalir.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás. Blöndunartæki frá Tengi og  AEG eldhústæki.
Hiti er í gólfum.
Naustavör 60-66 er nýtt 4ra hæða fjölbýlishús sem er í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi.

Nánari lýsing:
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum. 
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Mjög björt stofa, útgengi út á útsýnissvalir til vesturs.  Mikið sjávarútsýni er frá stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Hjónaherbergi með fataskápum.
Herbergi með fataskáp.

Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.

Áætlaður afhendingartími
Áætlað er að íbúðir við Naustavör 60-66 verði afhentar á tímabilinu október 2024 – febrúar 2025. Hús nr. 66 verður afhent í október 2024, hús nr. 64 verður afhent í nóvember 2024, hús nr. 62 verður afhent í febrúar 2025 og hús nr. 60 í mars 2025.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
108 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2024
Lyfta:
Fasteignamat:
0
Brunabótamat:
0
Áhvílandi:
0