Opið hús: 24. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.OPIÐ HÚS fimmtudaginn 24. október frá klukkan 17:00-17:30 að Lundi 14-18, íbúð 301. Allar nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 661-0804 (
[email protected]).
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU VANDAÐA 4RA HERBERGJA ENDAÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ MEÐ YFIRBYGGÐUM SUÐURSVÖLUM OG STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU AÐ LUNDI 14-18 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á efstu hæð með yfirbyggðum suðursvölum og stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin er skráð 150,6 fm., þar af er 10,9 fm. sérgeymsla innaf bílastæði.
Fallegar innréttingar og vönduð gólfefni eru í íbúðinni, hiti í gólfum og gólfsíðir gluggar í stofu.
6 íbúða lyftuhús með sérinngangi af svölum.
Vinsæl staðsetning á besta stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir og góðar gönguleiðir í Fossvogsdal.
Allar nánari upplýsingar veitir Hildur í síma 661-0804 ([email protected]).Nánari lýsing:Anddyri með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Borðstofa og stofa er björt með parketi á gólfi og útgengi út á yfirbyggðar suðursvalir.
Eldhús er opið inn í stofu með parketi á gólfi, fallegri innréttingu með marmara borðplötu, tvöföldum ísskáp og AEG tækjum.
Hjónasvíta með parketi á gólfi og fataherbergi.
Sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með marmara borðplötu, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni.
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með marmara borðplötu, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Stæði í lokaðri bílageymslu sem er með
sérgeymslu innaf stæði með mikilli lofthæð.
Sameignleg hjóla- og vagnageymsla.Fallegur ræktaður garður í kringum húsið og bílastæði á lóð.
Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.