S: 562 4250
Naustavör 36, 200 Kópavogur
106.900.000 Kr.
Opið hús: 22. október 2024 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús: Naustavör 36, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. október 2024 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA OG BJARTA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ Í NÝLEGU ÁLKÆDDU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 36 Í KÓPAVOGI.

Um er að ræða mjög fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu álklæddu lyftuhúsi, með stæði í lokaðri bílageymslu og yfirbyggðum stórum suðursvölum.
Íbúðin sjálf er 97,6 fm. Sérgeymsla í kjallara er 10,1 fm. Samtals er eignin því skráð 107,7 fm. 
Fallegar innréttingar og fataskápar frá Brúnás.
Hiti er í gólfum.  Stórar og góðar suðursvalir með svalaskjóli.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað með fallegu útsýni.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 eða á [email protected]  

Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu frá Brúnás með eyju (hvít og svartbæsuð eik) og vönduðum AEG eldhústækjum og stein á borði.
Stór og björt stofa og borðstofa með parketi og útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar suðursvalir (11,5 fm).
Hjónaherbergi með parketi á gólfi með fastaskáp og fataherbergi.
Barnaherbergi með parketi og skápum. (forstofuherbergi)
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili, fallegri hvítri innréttingu frá Brúnás og innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.

Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Stæði í bílageymslu er í kjallara.
Snyrtileg sameign og vel umgengin.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
107 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2020
Lyfta:
Fasteignamat:
95.200.000
Brunabótamat:
68.440.000
Áhvílandi:
0