S: 562 4250
Ekrusmári 5, 201 Kópavogur
139.500.000 Kr.
Opið hús: 28. október 2024 kl. 16:30 til 17:00.

Opið hús: Ekrusmári 5, 201 Kópavogur. Eignin verður sýnd mánudaginn 28. október 2024 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GOTT OG VEL SKIPULAGT RAÐHÚS VIÐ EKRUSMÁRA 5 Í KÓPAVOGI.
Fallegt raðhús á þremur pöllum með góðum bílskúr við Ekrusmára 5 í Kópavogi.
Húsið sjálft er 146,3 fm. og bílskúrinn er 22,7 fm., samtals er eignin því 169,0 fm.
Húsið er með 3 góðum svefnherbergjum en möguleiki er á 4. svefnherbergi.

Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting) 
Nánari Lýsing:
Neðsti pallur:

Komið er inn í forstofu með flísum og góðum fataskáp.
Hol með flísum á gólfi.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, flísum á gólfi og borðkrók.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Miðpallur:
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út í garð með verönd, fallegum gróðri og heitum potti.  Mikil lofthæð er í stofu, falleg loft með falskri fúgu.
Búið er að breyta skipulagi frá upphaflegum teikningum og stækka hjónaherbergi og stofu á kostnað svefnherbergis.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og miklu skápaplássi.  Útgengi út á verönd.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, baðkeri og innréttingu.
Þvottahús með innréttingu.  Innangegnt á geymsluloft frá þvottahúsi.
Efsti pallur:
Hol með parketi á gólfi.
Gott svefnherbergi með parketi á gólfi og útgengi út á stórar svalir með miklu útsýni.

Garður er fallegur með gróðri, timburveröndum, skjólgirðingu og heitum potti.  Að framan er hiti í bílaplani að mestu leytti.
Góður bílskúr með innréttingu.

Að utan er húsið í góðu ástandi.  Búið er að skipta um 5 rúður sunnanmegin.  Húsið hefur verið málað að utan eftir þörfum.  Þak var málað fyrir 4-5 árum.

Kostnaður kaupanda:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2.  Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  
4.  Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Raðhús
Stærð:
169 fm
Herbergi:
5
Stofur:
1
Svefnherbergi:
4
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1996
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
120.650.000
Brunabótamat:
91.150.000
Áhvílandi:
0