Opið hús: 21. nóvember 2024 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Mýrargata 26, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 03 07. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. nóvember 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur H Valtýsson Löggiltur fasteignasali s. 865 3022
Fjárfesting fasteignasala ehf s. 562 4250 kynnir virkilega fallega og bjarta, vel skipulagða 129,8 fm íbúð á 3ju hæð með aukinni lofthæð, vestursvölum og gólfsíðum gluggum að hluta, í vönduðu fjölbýlishúsi á eftirsóttum stað í miðborginni, íbúðinni fylgir auk þess sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í kjallara hússins þar sem lagt hefur verið fyrir rafhleðslustöðvum fyrir rafbíla. Á 7. hæð hússins stórar sameiginlegar útsýnissvalir með glerhandriðum. Lýsing eignar:Forstofa: Gengið inn frá svölum.
Hjónaherbergi: parketlagt með lausum fataskáp
Barnaherbergi: parketlagt með fataskáp.
Eldhús/borðstofa: parketlögð og björt með nýrri hvítri eldhúsinnréttingu, ekkert helluborð en ofn er nýr. Á eftir að ljúka við innrétting (rafmagn, helluborð og lista)
Stofa: er parketlögð með gólfsíðum gluggum og útgengi út á vestursvalir. Frá stofum og svölum nýtur fallegt útsýni út á sjóinn að Snæfellsjökli.
Baðherbergi I: Flísalagt gólf og veggir, skápar, handklæðaofn, flísalögð sturta með sturtugleri.
Baðherbergi II: flísalagt gólf og veggir, handklæðaofn, vaskaskápur, flísalögn í kring og flísalögð sturta með sturtugleri. Búið að fjarlægja baðkar, á eftir að flísaleggja í sárið.
Þvottaherbergi: flísalegt gólf, skápar og vaskur.
Í kjallara hússins eru:Sér bílstæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu þar sem komin er lögn fyrir hleðslustöð.
Sér geymsla 6,9 fm að stærð, í kjallara og með hillum.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla: mjög rúmgóð með útgengi á lóð.
Húsið að utan virðist í góðu ástandi og sameign hússins er mjög snyrtileg. Þrjár lyftur eru í húsinu. Húsvörður er í húsinu.
Staðsetning eignarinnar er á mjög vinsælum og eftirsóttum stað við Grandagarð, þar sem mjög miklil uppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár, þar er fjöldi verslana og veitingahúsa ásamt annarri þjónustu í nálægð við höfnina og í göngufæri við alla þá þjónustu sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Húsið var byggt 2014, glæsilega hannað með opnum garði í miðju hússins og á 6 & 7 hæð eru sameiginlegar þaksvalir með einstöku útsýni.
Allar nánari upplýsingar um eignina gefur Guðmundur H Valtýsson viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali s. 865 3022 eða [email protected] sýnir eignina.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
Fjárfestingfasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.