Opið hús: 21. nóvember 2024 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Naustavör 36, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 21. nóvember 2024 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA OG BJARTA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ Í NÝLEGU ÁLKÆDDU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 36 Í KÓPAVOGI.Um er að ræða mjög fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í nýlegu álklæddu lyftuhúsi, með stæði í lokaðri bílageymslu og yfirbyggðum stórum suðursvölum.
Íbúðin sjálf er 97,6 fm. Sérgeymsla í kjallara er 10,1 fm. Samtals er eignin því skráð 107,7 fm.
Fallegar innréttingar og fataskápar frá Brúnás.
Hiti er í gólfum. Stórar og góðar suðursvalir með svalaskjóli.
Frábær staðsetning á mjög vinsælum stað með fallegu útsýni.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 eða á [email protected] Nánari lýsing:Forstofa með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu frá Brúnás með eyju (hvít og svartbæsuð eik) og vönduðum AEG eldhústækjum og stein á borði.
Stór og björt stofa og borðstofa með parketi og útgengi út á rúmgóðar yfirbyggðar suðursvalir (11,5 fm).
Hjónaherbergi með parketi á gólfi með fastaskáp og fataherbergi.
Barnaherbergi með parketi og skápum. (forstofuherbergi)
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu með glerþili, fallegri hvítri innréttingu frá Brúnás og innbyggðum blöndunartækjum frá Tengi.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Sérgeymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Stæði í bílageymslu er í kjallara.
Snyrtileg sameign og vel umgengin.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.