FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 3JA HERB. ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í NÝJU LYFTUHÚSI VIÐ NAUSTAVÖR 62 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 4 hæð, merkt 0407 með aukinni lofthæð í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 129 fm. Sérgeymsla í kjallara er 12,1. fm. Samtals er eignin því skráð 141,1 fm.
Sjávarútsýni. Svalir.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás. Blöndunartæki frá Tengi og AEG eldhústæki.
Hiti er í gólfum.
Naustavör 60-66 er nýtt 4ra hæða fjölbýlishús sem er í nýju bryggjuhverfi við Kársnes í Kópavogi.
Nánari lýsing:Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu og vönduðum AEG eldhústækjum.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Stofa/borðstofa með útgengi út á svalir til norðausturs.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Hjónaherbergi með fataherbergi og sérbaðherbergi með sturtu og innréttingu.
Herbergi með fataskáp.
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sérgeymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.
Áætlaður afhendingartímiÁætlað er að íbúðir við Naustavör 60-66 verði afhentar á tímabilinu október 2024 – febrúar 2025. Hús nr. 66 verður afhent í október 2024, hús nr. 64 verður afhent í nóvember 2024, hús nr. 62 verður afhent í febrúar 2025 og hús nr. 60 í mars 2025.