FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA OG VEL SKIPULAGÐA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í NÝLEGU ÁLKLÆDDU LYFTUHÚSI MEÐ YFIRBYGGÐUM SVÖLUM OG STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU VIÐ NAUSTAVÖR 56 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu álklæddu lyftuhúsi, með yfirbyggðum svölum og stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin sjálf er 120,3 fm, sérgeymsla í kjallara er 9,9 fm. Samtals er eignin því skráð 130,2 fm.
Fallegt parket á gólfum, glæsilegar innréttingar frá Brúnás og vönduð AEG tæki. Gólfhiti er í íbúðinni.
Stórar yfirbyggðar vestursvalir með glæsilegu útsýni.
Nýlegt álklætt lyftuhús með álklæddum gluggum á mjög eftirsóttum útsýnisstað í Kópavogi.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 eða á [email protected].Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, glæsilegri innréttingu með Quartz steini á borðum, innbyggðri uppþvottavél. Gluggi er í eldhúsi.
Borðstofa og stofa er björt með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á stórar yfirbyggðar vestursvalir með glæsilegu útsýni.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi og sérsmíðaðri innréttingu (möguleiki er á að breyta rýminu í svefnherbergi).
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu með Quartz steini á borði, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, fataherbergi og sérsmíðaðri kommóðu.
Barnaherbergi með parketi á gólfi, fataskáp og skóskáp.
Gestasalerni innaf forstofu með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu með Quartz steini á borði.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Stæði í lokaðri bílageymslu og
sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla.Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.