S: 562 4250
Skólagerði 37, 200 Kópavogur
139.500.000 Kr.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU MIKIÐ ENDURNÝJAÐ PARHÚS VIÐ SKÓLAGERÐI 37 Í KÓPAVOGI.
Fallegt parhús á 2. hæðum með bílskúr á barnvænum stað við Skólagerði 37 í Kópavogi.
Húsið sjálft er 139,6 fm. og bílskúrinn er 40,0 fm., samtals er eignin því 179,6 fm.
4 góð svefnherbergi.
Garður er stór, mjög barnvænn og er með verönd og girðingum.
Örstutt í grunnskóla (Barnaskóla Kársness) sem mun opna í haust.

Nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting) 
Nánari Lýsing:
Neðri hæð:

Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi.
Þvottahús, sem var endurnýjað árið 2024, með epoxy á gólfum og snyrtilegri og góðri innréttingu.
Hol með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri hvítri innréttingu með steinborðplötum, góðum eldhústækjum og borðkrók.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi um stóra rennihurð út í garð.  Hiti er í gólfi fyrir framan rennihurðina.  Flísar eru fyrir framan rennihurð.
Gestasnyrting með flísum og vaskaskáp.

Efri hæð:
Gengið er upp á efri hæð um steyptan parketlagðan stiga.
Hol með parketi á gólfi.
Stórt hjónaherbergi með parketi á gólfi og góðum skápum.
Þrjú góð barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.  Hiti er í gólfi hluta eins barnaherbergis.
Baðherbergi með flísum, vaskaskáp og sturtu með glerþili.

Sérstæður bílskúr við hlið hússins sem er 40 fm. að stærð og þarnast lagfæringar.

Stór og góður garður til suðurs með hellulagðri verönd, girðingum og grasi.

Húsið hefur verið mikið endurnýjað.  Árið 2021 -2022 voru gluggar endurnýjaðir og rennihurð sett frá stofu út í garð  (áður var búið að skipta um glugga á suðurhlið efri hæðar.  Árið 2022 var framhlið máluð.  Árið 2012 var þak endurnýjað.  Árið 2021 var dregnar í nýjar raflagnir. Einnig er komin ný rafmagnstafla og bílhleðsustöð.  Árið 2007 voru skólplagnir endurnýjaðar út í brunn.  Gestasnyrting var endurnýjuð árið 2008 og baðherbergi árið 2018.  Eldhús var endurnýjað árið 2008 og bakarofn árið 2018.  Þvottahús endurnýjað árið 2024.

Kostnaður kaupanda:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2.  Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  
4.  Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Parhús
Stærð:
179 fm
Herbergi:
5
Stofur:
1
Svefnherbergi:
4
Baðherbergi:
2
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1968
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
109.850.000
Brunabótamat:
72.900.000
Áhvílandi:
0