S: 562 4250
Naustavör 60, 200 Kópavogur
139.900.000 Kr.
Opið hús: 01. apríl 2025 kl. 16:30 til 17:00.

Opið hús: Naustavör 60, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 13. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 1. apríl 2025 milli kl. 16:30 og kl. 17:00. Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur H Valtýsson löggilt. fasteignasali s.865 3022 eða [email protected]

Fjárfesting fasteignasala og Guðmundur H Valtýsson löggiltur fasteignasali  kynna NAUSTAVÖR 60 íbúð merkt 213
Íbúðin er sýnd eftir nánara samkomulagi. Guðmundur H Valtýsson löggiltur fasteignasali s.865 3022 eða [email protected]

Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð, merkt 213 í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 104 fm. Sérgeymsla í kjallara er 8,2. fm. Samtals er eignin því skráð 112,2 fm.
Sjávarútsýni.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Sjá nánar skilalýsingu:

1. Frágangur innanhúss íbúða
1.1. Gólfefni
Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Parka. 
1.2. Veggir
Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3. Loft
Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörtluð. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum og í ákveðnum íbúðum á 4.hæð er hluti lofta hljóðloft.
1.4. Gler
Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum glerframleiðanda, Kambar ehf.  
1.5. Hurðir
Inngangshurð EICS-30, EICS-35 eða EICS-42 eftir því sem við á. Inngangshurð inn í íbúðina verður spónlögð. Innihurðar eru yfirfelldar, sléttar og sprautulakkaðar hvítar. Inngangshurðir inn í íbúðir og innihurðir eru frá Parka.
1.6. Fataskápar
Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar þar sem við á.
1.7. Eldhús
Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar eða sprautulakkaðar. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja  helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Ísskápar fylgja þar sem þeir eru innbyggðir í innréttingu. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson.
1.8. Baðherbergi
Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða sprautulakkaðar. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu eftir því sem við á frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið úr gleri. Innbyggt blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.9. Þvottahús
Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Ekki eru ræstivaskar í innréttingu í sameiginlegu þvottahúsi/baði.  Borðplata er úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með viðurkenndri votrýmis málningu.
1.10. Sérgeymsla
Steypt loft, veggir og gólf í sérgeymslum eru hreinsuð og máluð. Skilveggir á milli geymslna eru ýmist steyptir eða með timburgrind og málaðri plötuklæðningu án innréttinga. Sérgeymslur inn af bílakjallara eru án innréttinga með stálhurð eða bílskúrshurð þar sem við á og lögð epoxy efni. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.  
1.11. Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita en sameign með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita- sem og ofnakerfi í sameign fylgir frágengið og verða hitastýrðir lokar á því.
1.12. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir
Loftræsi-, vatns, - og þrifalagnir fylgja frágengnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
1.13. Rafmagns- og sjónvarpslagnir
Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin með einum mynddyrasíma í íbúð. Loftnetstengill verður í alrými ásamt tölvutengli. Tölvutenglar verða í herbergjum. Ljósleiðari verður í húsinu. Innfelld lýsing í alrými (stofu og eldhúsi) samkvæmt teikningu er með dimmum.

2. Frágangur sameignar
2.1. Anddyri og stigahús
Steyptir innveggir í sameign og geymslum eru hreinsaðir og málaðir. Sameign á hverri íbúðarhæð og stigagangur eru sandspartlaðir, grunnaðir og málaðir tveimur yfirferðum af plastmálningu. Aðalinngangur hvers stigahúss er flísalagður með uppsettum póstkössum, íbúðartöflu og dyrabjöllu. Stigar og stigapallar eru teppalagðir en það er gert nokkru eftir að íbúðareigendur hafa flutt inn. Stigahlaup að kjallara er flíslagt. Á stigum og pöllum eru uppsett handrið. Raflögn í sameign fylgir frágengin með ljósakúplum þar sem venja er að hafa þá ásamt lýsingu í lofti þar sem við á. Loftræsilagnir eru lagðar samkvæmt teikningum.
2.2. Hurðir
Allar útihurðar fylgja frágengnar. Aðal inngangshurðir og innri anddyrishurðir eru úr áli með mótorknúinni hurðarpumpu eða mótorknúnum rennihurðarbúnaði nema á þeim hurðum sem snúa inn í garð hússins. Hurðir frá bílgeymslu gegnum brunastúkur verða með rafmagnsopnun.
2.3. Lyftur
Fólkslyfta er í húsinu af gerðinni Mono Space eða sambærileg frá Kone og verður tilbúin til notkunar í stigahúsi.
2.4. Lokað bílageymsluhús
Bílgeymsla er í kjallara hús með máluðu lofti og Herakustik þar sem við á. Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á. Þeir eru hreinsaðir og slípaðir að innanverðu og málaðir. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgir frágengið í samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt. Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð fyrir bílgeymslu fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill fylgir hverju stæði.
2.5. Hjóla- og vagnageymslur
Steyptir innveggir í hjóla- og vagnageymslu eru hreinsaðir slípaðir og málaðir. Gólf eru slípuð og máluð.
2.6. Sorp og sorpgeymslur
Sorpgeymsla er í bílageymslu. Veggir eru með múrfiltun og málaðir.  Gólf eru slípuð og lögð epoxy.

3. Frágangur utanhúss
3.1. Klæðning og einangrun
Útveggir verða einangraðir ýmist að utan- eða innanverðu eftir því sem við á og álklætt að mestu að utan. Kjallaraveggir og veggir 1 hæðar að hluta eru með múrfiltun og í steypulit. Sprungur geta myndast á yfirborði múrveggja sem verða ekki meðhöndlaðar frekar
3.2. Steypt þak
Þakplata er steypt með vatnshalla að niðurföllum. Ofaná steypa plötu kemur tvöfalt lag af eldsoðnum tjörupappa. Einangrun er 200 mm rakaþolin þrýstieinangrun. Ofan á einangrun kemur vatnsvarnardúkur með öndun, einangrun er fergt með sjávarmöl/völusteinum. Niðurföll eru tengd regnvatnslögnum.
3.3. Svalir
Svalagólf eru steypt og slípuð eða með múrfiltun eftir því sem við á. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og gler eða sambærilegt. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Þaksvalir eru með gagnvarði furu þar sem við á.
3.4. Svalalokun
Möguleiki er á svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts garðmegin. Glerlokun yrði þá frá Ál og gleri sem kaupendur geta keypt aukalega eftir á. Sjá nánar á aðalteikningum arkitekts.
3.5. Gluggar
Gluggar eru álklæddir timburgluggar frá Kambar ehf.. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin, svo og allar úti- og svalahurðir að fullu frágengnar með þéttiköntum.
3.6. Lóð
Lóð verður fullfrágenginn samkvæmt leiðbeinandi teikningu landslagsarkitekts. Stéttar næst húsi verða hellulagðar og snjóbræðslulögn í gangstíg framan við húsið samkvæmt teikningu. Bílastæði eru malbikuð. Hlið inn á timburverandir verða þar sem við á.

Áætlaður afhendingartími :
íbúðin er laus til afhendingar

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
112 fm
Herbergi:
3
Stofur:
0
Svefnherbergi:
0
Baðherbergi:
0
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2024
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
73.900.000
Brunabótamat:
0
Áhvílandi:
0