S: 562 4250
Safamýri 25, 108 Reykjavík
126.300.000 Kr.
Opið hús: 28. apríl 2025 kl. 16:00 til 17:00.

Opið hús: Safamýri 25, 108 Reykjavík. Eignin verður sýnd mánudaginn 28. apríl 2025 milli kl. 16:00 og kl. 17:00.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA SÉRHÆÐ VIÐ SAFAMÝRI 25 Í REYKJAVÍK.
Falleg sérhæð (miðhæð) í þríbýlishúsi við Safamýri.
Hæðin sjálf er 138,3 fm., bílskúrinn er 28,7 fm. og sérgeymsla á 1. hæð er 5,8 fm. samtals er eignin því skráð 172,8 fm.
Bílskúr (nær húsinu) er góður með stórum glugga, flísum á gólfi og skápum.
Staðsetning er mjög góð, örstutt frá grunnskóla, leikskóla og íþróttasvæði.
4 svefnherbergi.
Tvennar svalir.

Nánari upplýsingar veitir Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]
Nánari Lýsing:

Komið er inn í anddyri með flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi.
Eldhús með flísum á gólfi, fallegri innréttingu úr elri, góðum eldhústækjum og borðkrók.
Svefnherbergigangur með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi sem snýr í suður.
Tvö góð barnaherbergi með parketi á gólfi. Útgengi út á stórar suðursvalir úr öðru herberginu.
Eitt lítið herbergi sem nú er nýtt sem skrifstofa.
Baðherbergi, sem er nýlegt, er með flísum á gólfi og veggjum, gólfhita, baðkari með sturtuaðstöðu og glerþili, upphengdu salerni og innréttingu.
Þvottahús er innaf anddyri (var áður nýtt sem gestasnyrting, auðvelt að setja aftur upp salerni).
Gengið er niður í sameign frá anddyri.

Sérgeymsla er á 1. hæð sem og gott sameiginlegt þvottahús.

Góður bílskúr sem er 28,7 fm. að stærð.

Húsið hefur fengið gott viðhald  á undanförnum árum.  Árið 2016 voru útidyratröppur brotnar niður og endurbyggðar að mestu. Skipt um rúðu í skrifstofuherbergi.  Árið 2017 voru stórar múrframkvæmdir á húsinu að utan, svalir að verulegu leyti endurbyggðar og húsið málað. Árið 2019 var stofugluggum á suðurhlið skipt út. Árið 2021 var dren og skólp endurnýjað, sett ný bílskúrshurð og hitagrind íbúðar endurnýjuð að frátöldum þrýstijafnara.  Ný rafmagnstafla í íbúð. Baðherbergi endurnýjað. Árið 2022 var jarðvegi bætt í garð, tyrft og hellulagt. Skipt um rúðu í barnaherbergi sem snýr í norður.  Þak málað, þakrennur lagfærðar, múrviðgerðir eftir þörfum og málað. Árið 2023 var gólf málað í sameign og skipt um þrýstijafnara í hitagrind íbúðar. Vorið 2024 voru múrviðgerðir utan á húsinu. 2025 skipt út ljósum í og við bílskúr.

Kostnaður kaupanda:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2.  Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3.  Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.  
4.  Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Hæð
Stærð:
172 fm
Herbergi:
5
Stofur:
1
Svefnherbergi:
4
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
1964
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
110.950.000
Brunabótamat:
82.600.000
Áhvílandi:
0