S: 562 4250
Naustavör 11, 200 Kópavogur
107.900.000 Kr.

SELD MEÐ FYRIRVARA
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA OG VEL SKIPULAGÐA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ MEÐ TIMBURVERÖND OG STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU VIÐ NAUSTAVÖR 11 Í KÓPAVOGI.

Falleg og afar vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með timburverönd og stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin er skráð 107,1 fm., þar af er 6,6 fm. sérgeymsla innaf bílastæði í kjallara.
Vandaðar innréttingar og parket á gólfum.
Gólfhiti er í íbúðinni og álklæddir gluggar.
Sólrík stór timburverönd með skjólveggjum sem snýr í suðvestur.
Nýlegt lyftuhús á mjög vinsælum stað í Kópavogi, stutt er í opið leiksvæði fyrir börn.

Allar nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 eða á [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa með parketi á gólfi og rúmgóðum fataskáp.
Eldhús með parketi á gólfi, fallegri innréttingu með eyju (hvít og svartbæsuð eik) með innbyggðri uppþvottavél og AEG eldhústækjum.
Borðstofa og stofa er björt með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á mjög stóra timburverönd með skjólveggjum til suðvesturs. 
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataherbergi.
Barnaherbergi innaf forstofu með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni.
Þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu og góðum kústskáp.
Stæði í lokaðri bílageymslu er með sérgeymslu innaf stæði.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Nóg af auka bílastæðum á lóð.

Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2700,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
107 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
0
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2019
Lyfta:
Fasteignamat:
101.650.000
Brunabótamat:
73.540.000
Áhvílandi:
0