FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ MEÐ ÚTSÝNI OG INNBYGGÐUM BÍLSKÚR AÐ DÚFAHÓLUM 4. Um er að ræða vel skipulagða, 103 fm, 4ra herbergja íbúð á 1. hæð ásamt geymslu í kjallara svo og 23,3 fm bílskúr samtals 126,3 fm.
Björt og falleg íbúð með miklu fallegu óhindruðu útsýni. Nýlegir ofnar eru í íbúðinni.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).Nánari Lýsing:Komið er inn anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Rúmgott hol með parketi.
Eldhús með parketi á gólfi, hvítri innréttingu og borðkrók við glugga.
Stór björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi, gengið út á vestursvalir (sem verða yfirbyggðar á næstunni) með fallegu útsýni yfir Reykjavík, Faxaflóann og fleira.
Hjónaherbergi með parkteti á gólfi og skápum.
Tvö barnaherbergi með parketi og með skáp í öðru herberginu.
Baðherbergi er nýlega standsett með flísum, sturtu, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Sameign snyrtileg, Sérgeymsla í kjallara svo og hjóla- og vagnageymsla. Svo og sameinlegt þvottahús.
Innbyggður bílskúr með nýlegri bílskúrshurð, opnara, heit og kalt vatn.
Viðhald: Nýlega búið að endurnýja rafmagn í sameign. Nýleg lyfta. Búið að skipta um gler í sameign og í íbúð.
Nýlega viðgert þak. Hitalagnir í stétt. Endurbætur á lóð að ofanverðu. Nýlegar rafdrifnar útihurðir á sameign. Verið að setja svalalokun á svalir. (búið að greiða)
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.