NAUSTAVÖR 42 KÓPAVOGI
GLÆSILEG 3JA- 4RA HERB. ÍBÚÐ Á 4. HÆÐ MEÐ SJÁVARÚTSÝNI Í LYFTUHÚSI MEÐ BÍLAKJALLARA OG BÍLSKÚR.Glæsileg og vel skipulögð 3ja-4ra herbergja íbúð á 4. hæð, merkt 407 í fallegu nýlegu álklæddu lyftuhúsi.
Íbúðin sjálf er 120,8 fm. Sérgeymsla/bílskúr í kjallara er 28,4 fm. Samtals er eignin því skráð 149,2 fm.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir.
Vestursvalir.
Íbúðin er öll hin glæsilegasta með fallegum innréttingum og fataskápum frá Brúnás. Boðrplötur frá S Helgasyni. Blöndunartæki frá Tengi og AEG eldhústæki.
Hiti er í gólfum.
Vinsamlega pantið skoðun í síma 845-0425 Edda Svavarsdóttir eða [email protected]Nánari lýsing:Fallegt gegnheilt eikar fiskabeina parket er á allri íbúðinni.
Komið er inn í forstofu með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu með borðplötu úr Kvarts með marmara útliti og vönduðum AEG eldhústækjum. Þvottahús inn af eldhúsi með flísum á gólfi og innréttingu.
Mjög björt stofa með 3,3m. lofthæð, útgengi út á útsýnissvalir til vesturs. Svalalokun er á svölum.
Baðherbergi með fallegum 60x120 flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás. Kvarts með marmara útliti er á borði.
Hjónaherbergi með fataherbergi.
Forstofuherbergi með fataskáp.
Möguleiki er á að útbúa auka herbergi/sjónvarpsrými.
Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og innaf stæði er 28,4 fm. bílskúr.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
EDDA SVAVARS LGF. OG FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ERU MEÐ ÞESSA EIGNA Í EINKASÖLU SÍMI 8450425.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 2500,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.