Heiðarholt 30, 230 Reykjanesbær. Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í göngufæri við Heiðarskóla. Íbúð 201 skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. .Sólar svalir út frá stofu.
Sameiginlegt þvottahús á hæð ásamt tveimur öðrum íbúðum á hæðinni. Sérgeymsla og sameiginleg hjóla/vagnageymsla á 1.hæð.
Eignin er skráð í þjóðskrá 78 fm. og er þá ca.10 fm. geymsla að auki.
Frekari upplýsingar eru hjá Eddu í síma 845-0425 ([email protected])Nánari lýsing eignar:íbúðin er með parketi á gólfum.
Forstofan með fataskáp.
Eldhúsið er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, span helluborð með háf yfir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofan er björt og rúmgóð. Útgengt er á sólríkar svalir.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Upp hengt salerni.
Hjónaherbergi með fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp.
Sérgeymsla á geymslugangi.
Frábær eign fyrir fyrstu kaupendur eða litlar fjölskyldur. Fjárfesting fasteignasala og Edda Svavarsdóttir, löggiltur fasteignasali, eru með þessa eign í einkasölu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.