Háaleitisbraut 49, 108 Reykjavík. Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 1. hæð merkt 103 í göngufæri við Álftamýrarskóla.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, vinnurými og baðherbergi. Suður svalir út frá stofu.
Sameiginlegt þvottahús, sérgeymsla og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Eignin er skráð í þjóðskrá 99,5 fm. þar af 5,1 fm. geymsla
LAUS STRAXFrekari upplýsingar eru hjá Eddu í síma 845-0425 ([email protected])Nánari lýsing eignar:íbúðin er með parketi á gólfum.
Eldhús er opið inn í stofu með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, span helluborði með háf yfir, innbyggð uppþvottavél og ísskápur.
Stofa er björt og rúmgóð. Útgengt er á sólríkar svalir.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi með fataskáp, útgengt á svalir.
Barnaherbergi eru tvö, annað rúmgott með fataskáp og hitt er minna.
Sérgeymsla á geymslugangi.
Stigagangur snyrtilegur.
Viðhald:Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2020 og m.a. skipt um gólfefni, hurðir og allar innréttingar.
Húsið hefur notið reglubundins viðhalds í gegnum árin. Þak lagfært árið 2010. Suðurhlið og austurgafli varu lagfærð árin 2011-2012. Heildarviðhald á hjúp hússins að undangenginni ástandsskoðun árið 2020-2021, fólst m.a. í almennum múrviðgerðum, tröppur voru lagfærðar, skyggni klædd og skipt um glugga eftir þörfum.
Frábær fjölskyldueign á góðum stað, stutt í skóla og íþróttastarf Víkings.Fjárfesting fasteignasala og Edda Svavarsdóttir, löggiltur fasteignasali, eru með þessa eign í einkasölu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.