S: 562 4250
Aldinmörk 2, 810 Hveragerði
55.900.000 Kr.
Opið hús: 12. janúar 2026 kl. 16:30 til 17:30.

Opið hús: Aldinmörk 2, 810 Hveragerði, Íbúð merkt: 01 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 12. janúar 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:30.

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ VIÐ ALDINMÖRK 2, HVERAGERÐI. 
Um er að ræða vel skipulagða, 75,3 fermetra, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi.
Björt og falleg íbúð með verönd í 4ra íbúða húsi.

Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).

Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp.
Eldhús og stofa eru í opnu rými. Úr stofu er gengið út á hellulagða verönd á móti suðri.
Opið eldhús með fallegri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi með innréttingu, speglaskáp, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherbergi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Geymsla innan íbúðar með flísum á gólfi og glugga.

Íbúðin er staðsett á svokölluðum Edenreit sem er miðsvæðis í Hveragerði. 
Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Miðsvæðis er leiksvæði.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
75 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2019
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
54.400.000
Brunabótamat:
43.900.000
Áhvílandi:
0