FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ VIÐ TRÖLLAKÓR 7 Í KÓPAVOGI. Um er að ræða vel skipulagða, 104,4 fm., 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og stórri timburverönd með skjólveggjum.
Björt og falleg íbúð með verönd þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla og verslanir.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).Nánari lýsing:Komið er inn í
anddyri með flísum á gólfi og fataskáp.
Stór og björt
stofa með fallegu parketi á gólfi. Gengið út á góða
suðurverönd með skjólveggjum.
Eldhús með góðri eikarinnréttingu, gluggi er á eldhúsi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkari og nýlegri innréttingu.
Stórt
hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Rúmgott
herbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Stór
geymsla með lausum hillum sem geta fylgt með.
Sameinleg
hjóla og vagnageymsla.Lóð og bílstæði frágengin og snyrtileg.
Stutt í skóla, verslun og þjónustu.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.