FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ Í SÖLU FALLEGT SUMARHÚS VIÐ SKORRADALSVATN MEÐ BÁTASKÝLI.Fallegt og mikið endurnýjað sumarhús við Vatnsendahlíð 67 við Skorradalsvatn.
Sumarhúsið sjálft er 50,3 fm. að stærð, gestahús er 9,6 fm og bátaskýlið er 21,3 fm. Samtals er eignin því 81,2 fm.
Sumarhúsið stendur á 2.716 fm. leigulóð.
Sumarhúsið var byggt árið 1988 en gestahúsið árið 2000.
Bátaskýli við Skorradalsvatn fylgir.
Sportbátur getur selst með en það þarf að semja sérstaklega um það.
Heitur pottur (rafmagns) fylgir.
Þrjú svefnherbergi.
Gestahús.
Svefnpláss fyrir allt að 11 manns.
Innbú getur fylgt.
Falleg lóð með leiktækjum og barnahúsi.
Upplýsingar gefur Óskar í síma 822-8750 ([email protected]).
Nánari Lýsing:Anddyri með flísum á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi, upphengdu salerni, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á timburverönd.
Opið eldhús með fallegri innréttingu.
Þrjú svefnherbergi með parketi. Tvö þeirra með kojum.
Gestahús er á lóð. Þar er svefnherbergi öðru megin og geymsla hinum megin.
Falleg lóð með miklum veröndum, litlu barnahúsi, rólu, sandkassa, grasi og gróðri.
Lítil útigeymsla við hlið hússins.
Bátaskýlið er að Vatnsendahlíð 201, 0103
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 2700 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.