Opið hús: 22. apríl 2026 kl. 16:00 til 16:30.Opið hús: Jöfursbás 5, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 22. apríl 2026 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 2JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á JARÐHÆÐ VIÐ JÖFURSBÁS 5B Í REYKJAVÍK. Við kynnum til sölu virkilega fallega, bjarta og vel skipulagða 55,9 fm. íbúð á jarðhæð með verönd í nýlegu og vönduðu fjölbýlishúsi.Gott skipulag en alrýmið er opið þar sem eldhús og stofa mætast í björtu rými.
Fallegt útsýni úr íbúð út á sjóinn.
Skjólgóð verönd sem stækkar íbúðina til muna á góðviðrisdögum.
Nýlegt hús þar sem frágangur er nútímalegur, viðhaldsléttur og í takt við nýjustu kröfur.
Gólfhiti er á allri íbúðinni.
Tilvalin fyrstu kaup fyrir þá sem vilja njóta þæginda nýlegrar byggingar.
Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).Nánari lýsing:Forstofa með parketi á gólfi og fatahengi.
Eldhús með parketi á gólfi, opið á móti stofu með stílhreinni innréttingu, vönduðum tækjum og góðu skápaplássi sem nær alveg upp í loft.
Stofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn.
Svefnherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og stórum fataskápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til og fallegri innréttingu.Tengi fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi.
Sérgeymsla fylgir íbúðinni í sameign sem og
hjóla og vagnageymsla.
Frábært tækifæri til að eignast fallega eign á góðum stað þar sem stutt er í fallegt útivistarsvæði.Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.