Opið hús: 19. maí 2026 kl. 16:30 til 17:00.Opið hús: Álfaborgir 9, 112 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 19. maí 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.
FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU FALLEGA 3JA HERB ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í VIÐ ÁLFABORGIR 9 Í REYKJAVÍK.Um er að ræða fallega 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með sérinngangi af svölum.
Íbúðin sjálf er 83,3 fm. að stærð og sérgeymsla er 3,3 fm. Samtals er eignin því skráð 86,6 fm.
Uppl. hjá Óskari í síma 822-8750 ([email protected])
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi.
Hol með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, baðkeri með glerþili og innréttingu.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, parketi á gólfi, góðum eldhústækjum og borðkrók við glugga.
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á svalir.
Svefnherbergi með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er á 1. hæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Húsið var viðgert árið 2018 þar sem þak var yfirfarið, skipt um rennur og frárennsli, skipt um glugga á suðurhlið hússins og svalahurðir, þakrennur á suðurhlið, húsið málað, svalagólf sílanborin og máluð, viðgerðir á svalahandriðum og útihurðir lakkaðar.
Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í skóla og alla helstu þjónustu.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.