S: 562 4250
Ferjubakki 12, 109 Reykjavík
Tilboð

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ Í SÖLU FALLEGA 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ VIÐ FERJUBAKKA 12, Í REYKJAVÍK. 

Um er að ræða vel skipulagða og bjarta 3ja herbergja íbúð á 2. hæð.
Íbúðin er skráð skv. HMS 98,3 fm., íbúðin sjálf er 84,2 fm. og stór geymsla í kjallara 14,1 fm.
Björt og hlý íbúð sem var mikið endurnýjuð að innan fyrir ca. 5 árum á smekklegan máta.
Húsið hefur verið mikið lagfært á undanförnum árum.
Búið er að skipta um flesta glugga og gler í húsinu.  Settir voru nýjir ofnar og lagnir í íbúðinni voru endurnýjaðar niður í stamma og er nú verið að fara að endurnýja/fóðra skólplagnir í húsinu.
Þakið var nýlega málað, yfirfarið og skipt um þakrennur. Húsið er nýlega málað að utan. 
Búið að setja upp nokkrar hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á sameiginlegu bílastæði. Næg bílastæði eru við húsið.

Upplýsingar gefur Guðjón í síma 846-1511 ([email protected]).

Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri með parket á gólfi.
Mjög stór og björt stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á góðar svalir. 
Opið eldhús með parketi á gólfi og stórri fallegri innréttingu. Gott skápapláss og er hluti af innréttingu nýtt sem eyja. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu og sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurkara er á baðherbergi.
Stórt hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Rúmgott barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Stór sérgeymsla í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð. 
Snyrtileg sameign.

Stutt í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila en 0,4% fyrir fyrstu kaup einstaklinga.   
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
98 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
1968
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
61.000.000
Brunabótamat:
45.150.000
Áhvílandi:
0