S: 562 4250
Stráksmýri 18, 311 Borgarnes
Tilboð

Fjárfesting fasteignasala ehf. og Ómar Örn Sigurðsson kynnia eignina Stráksmýri 18, 311 Borgarbyggð, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 226-1895 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Stráksmýri 18 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 226-1895, birt stærð 50.6 fm.

SUMARHÚS Á EIGNARLÓРMEÐ HITAVEITU, HEITUM POTTI ,STEYPTRI GÓLFPLÖTU (HITI Í GÓLFI) LÓÐIN HÖNNUÐ AF LANDLAGSARKITEKTI. RAFMAGNSHLIÐ SEM STÝRT ER MEÐ APPI.

Fallegur og vel viðhaldinn 50,6 fm. sumarbústaður sem er staðsettur innst í botnlanga í Indriðastaðahlíð, ofan vegar við Skorradalsvatn. Fallegt útsýni er upp á Skarðsheiði og Skessuhorn. Norskur Landslagsarkitekt hannaði alla lóðina og er hún einstaklega falleg og sérstök blanda af trjám og formið á pallinum einstakt og fallegt.
Eignarlóð 2.726 fm, þar sem tréin mynda mjög gott skjól fyrir vindi næst húsinu og skyggja líka á næstu bústaði. Yndislegur lækur er á lóðinni við fjallsræturnar.
Aksturstím frá Reykjavík er rétt rúmlega klukkustund og aðeins um 15 mínútna akstur í Borgarnes þar sem er öll nauðsynleg þjónusta, verslanir, eldsneyti og ekki má gleyma glæsilegu sundlauginni þar.

Nánari lýsing:  Anddyri er flísalagt.
Eldhús: Eldri innrétting, keramik span helluborð, ísskápur og örbylgjuofn
Baðherbergi: Flísalagt gólf, sturtuklefi og ný innrétting, vaskur og blöndunartækin frá Vola, spegill með lýsingu.
Svefnherbergi 1: með tvíbreiðu rúmi, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Með 120 cm rúmi, parket á gólfi
Stofa: Parketlögð með kamínu
Stór og fallegur sólpallur ca 100 fm. með heitum potti (hitaveita) og útisturtu. 
Nýtt parket var lagt á eldhús, stofu og herbergi í febrúar 2022

Skipt hefur verið um alla lýsingu, bæði inni og úti. Nýtt rafmagn dregið í ásamt því að nýir rofar og raflagna efni hefur verið endurnýjað.
Skipt hefur verið um hitaveitugrind, allt þar nýtt.
Stórt bílastæði er við bústaðinn.
Framan við húsið er auður reitur sem er upplagður fyrir gestahús.
Allur bústaðurinn hefur verið málaður að innan sem utan þar sem litir, ljós og aukahlutir voru valdir af innanhússarkitektinum Katrínu Ísfeld. Er búið að teikna upp nýtt eldhús miða við stækkun á bústaðnum og fylgir teikningin með ef kaupandi hefur áhuga á því.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Sigurðsson , í síma 8970203, tölvupóstur [email protected].

Tegund:
Sumarhús
Stærð:
50 fm
Herbergi:
3
Stofur:
1
Svefnherbergi:
2
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sér
Byggingaár:
2002
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
32.750.000
Brunabótamat:
35.850.000
Áhvílandi:
0