S: 562 4250
Hafnarbraut 12D, 200 Kópavogur
94.900.000 Kr.

Fjárfesting fasteignasala og Ómar Örn Sigurðsson löggiltur fasteignasali kynna:
Hafnarbraut 12d, 200 Kópavogur, nánar tiltekið eign merkt 03-06, fastanúmer 251-0805 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hafnarbraut 12d er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-0805, birt stærð 119,20 fm.

Falleg, björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 3ju hæð með 10 fm geymslu með góðri lofthæð
og stæði í bílakjallara.
Íbúðin er staðsett vestast á Kársnesinu í rótgrónu og vinsælu hverfi sem er í mikilli uppbyggingu.
 
Nánari lýsing:
Forstofa: komið er inn í rúmgóða flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Stofa: Stofan er í opnu rými, björt og með glugga á tvo vegu og svalir. Quick step parket er á öllu alrými og herbergjum.
Eldhús: falleg hvít innrétting með silkimattri áferð er í eldhúsinu með ljósri borðplötu. Keramik helluborð með viftu yfir og ofninn er í borðhæð. 
Svefnherbergi: Herbergin eru þrjú, öll með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum utan eitt.
Baðherbergi: Baðherbergið er mjög rúmgott og með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Stór sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og létt innrétting.
Þvottaherbergi: er með góðri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Í henni er vaskur og gott vinnu- og geymslurými.
Geymsla: í sameign er sérgeymsla sem fylgir eigninni og er skráð skv fmr10fm. 
Stór hjóla geymsla er í sameign.
Bílastæði: eigninni fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. 

Þessi skemmilega íbúð er staðsett vestast á Kársnesinu sem er rótgróið og vinsælt hverfi, í mikilli uppbyggingu. Nú eru hafnar framkvæmdir við Fossvogsbrúna, sem verður frábær tenging við Miðbæ Reykjavíkur. Nýr grunnskóli, Kársnesskóli og sambyggður honum verður nýr leikskóli. Örstutt er í Sky Lagoon og þá er ein besta sundlaug landsins, Kópavogslaug, í göngufjarlægð. Þá er ýmis þjónusta komin í hverfið eins og t.d. Brikk bakarí og veitingahúsið Brasserie Kársnes.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Sigurðsson, lögg. fasteignasali, í síma 8970203,
tölvupóstur [email protected].

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
119 fm
Herbergi:
4
Stofur:
1
Svefnherbergi:
3
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
2020
Lyfta:
Fasteignamat:
93.200.000
Brunabótamat:
76.490.000
Áhvílandi:
0