FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU STÓRGLÆSILEGA ÍBÚÐ Á EFSTU HÆÐ Í NÝLEGU ÁLKLÆDDU LYFTUHÚSI MEÐ AUKINNI LOFTHÆÐ OG STÆÐI Í LOKAÐRI BÍLAGEYMSLU VIÐ NAUSTAVÖR 62 Í KÓPAVOGI.Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í nýlegu álklæddu lyftuhúsi með stæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin sjálf er 129,0 fm, sérgeymsla í kjallara er 12,1 fm. Samtals er eignin því skráð 141,1 fm.
Fallegt parket á gólfum, glæsilegar innréttingar frá Brúnás og vönduð AEG tæki.
Gólfhiti er í íbúðinni.
Nýlegt álklætt lyftuhús með álklæddum gluggum á mjög eftirsóttum útsýnisstað í Kópavogi.
Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars hf.
Allar nánari upplýsingar veitir Óskar í síma 822-8750 eða á [email protected].
Nánari lýsing:Anddyri með parketi á gólfi og góðum fataskáp.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Eldhús með parketi á gólfi, glæsilegri innréttingu með Quartz steini á borðum og innbyggðri uppþvottavél.
Borðstofa og stofa er björt með parketi á gólfi og aukinni lofthæð. Þaðan er gengið út á góðar svalir með glæsilegu útsýni.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu með Quartz steini á borði, sturtu með innbyggðum tækjum og handklæðaofni.
Hjónasvíta með parketi á gólfi, fataherbergi og baðherbergi innaf fataherbergi.
Barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Stæði í lokaðri bílageymslu og sérgeymsla í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingargjald er 3800,- kr af hverju skjali.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.