S: 562 4250
Brávallagata 16A, 101 Reykjavík
92.900.000 Kr.

Fjárfesting fasteignasala ehf. og Ómar Örn Sigurðsson löggiltur fasteignasali kynna eignina Brávallagata 16A, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign
merkt 02-01, fastanúmer 200-4249 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Brávallagata 16A er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-4249, birt stærð 102.9 fm.
Þetta er einstaklega falleg og björt íbúð á frábærum stað í gamla Vesturbænum.
Komið er inn í anddyri/gang með parketi, rúmgóður fataskápur sem gengið er inn í.
Tvær stórar samliggjandi stofur með parketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri eldri innréttingu og flísum á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með stórum glugga og parketi.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og stórum fastaskápum. Útgengt er á svalir.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og að hluta á veggjum. Þar er baðker og upphengt salerni og nýleg innrétting og góður skápur.
Risherbergi fylgir íbúðinni með þakglugga og getur nýst sem tölvuherbergi eða svefnherbegi.
Sérgeymsla íbúðar er einnig í risinu. 

Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.  Úr sameigninni er gengið út í fallegan gróinn garð. Bakgarður liggur að fallegum sameiginlegum stíg með Ásvallagötu, Ljósvallagötu og Blómvallagötu. 
Ýmsir möguleikar eru til að breyta íbúðinni, t.d. er auðvelt er að breyta stofu eða borðstofu í herbergi og hafa þannig þrjú svefnherbergi innan íbúðarinnar.

Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár. Gler og gluggar á vesturhlið voru endurnýjaðir árið 2013, austurhluti var endurnýjaður 2005. Gert var við steyptar rennur og þakkant á milli húsanna 16a og 18 gerðar 2016. Neysluvatnslagnir endurnýjaðar í húsinu 2008 og frárennslis lagnir endurnýjaðar að hluta 2009. Rafmagn íbúðar og sameignar hefur verið endurnýjað og er nýlega tafla í íbúðinni. Þakið var yfirfarið og skipt um járn og þakglugga 2020.

Nánari upplýsingar veitir Ómar Örn Sigurðsson Lögg. fasteignasali, í síma 8970203, tölvupóstur [email protected].

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2.Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Tegund:
Fjölbýli
Stærð:
102 fm
Herbergi:
4
Stofur:
2
Svefnherbergi:
3
Baðherbergi:
1
Inngangur:
Sameiginlegur
Byggingaár:
1943
Lyfta:
Nei
Fasteignamat:
86.900.000
Brunabótamat:
55.100.000
Áhvílandi:
0