Opið hús: 10. október 2026 kl. 15:00 til 15:30.Opið hús: Stigahlíð 24, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 04 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 10. október 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30. Eignina sýnir Jónas lgfs. Frekari upplýsingar í síma 842-1520 eða á netfang
[email protected]
Jónas H. Jónasson löggiltur fasteignasali og Fjárfesting Fasteignasala kynna í einkasölu: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 4. hæð, vel staðsett eign, stutt í alla þjónustu og út á stofnbrautir. Íbúðin er 55,6m2 að stærð, þar af er sérgeymsla í kjallara 3,9m2. Húsið hefur fengið mikið og gott viðhald undanfarin ár og er að mestu yfirfarið eða mikið endurnýjað. Fyrir framan hús eru næg bílastæði ásamt þremur fyrir rafbíla.
Nánari lýsing:Stigagangur og sameign teppalögð.
Forstofuhol: Parketi á gólfi og fatahengi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa/borðstofa með parket og útgengt á svalir.
Eldhús: Með vínilparket á gólfi og góðri innréttingu með miklu skápaplássi ásamt borðkrók.
Svefnherbergi: Rúmgott með innbyggðumskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf. Vaskur á innréttingu og baðkar með sturtu.
Sérgeymsla út á stigagangi og í kjallara: Í kjallara sameignar er 3,9m2 sérgeymsla, auk sameiginlegrar vagna- og hjólageymslu.
Þvottaherbergi: Sameiginlegt þvottaherbergi er í kjallara.
Mikið viðhald hefur farið fram á húsinu seinustu ár:2025 var húsið steinað og málað, svalir lagaðar og handrið hækkað.
2024 var skipt um glugga.
2022 var skipt um bárujárn á þaki.
2022 var komið upp hleðslustöðvum fyrir rafbíla.
Allar nánari upplýsingar veitir:Jónas H. Jónasson lögglitur fasteignasali í síma 842-1520 eða á [email protected]
Ertu að fara selja, hafðu samband og ég mun vinna með þér í gegn um allt söluferlið.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.